SjórogHaf. Þar sem commentin skipta máli

Hafsins Hetjur - Vinsælli en Jesús

25.08.2007 17:33:50 / bakkus

Ný og betri síða molanna

Höfum við ákveðið að segja skilið við sjooghaf og höfum við opnað nýja og glæsilega síðu þar sem mun koma fram allt það sem okkur molunum dettur í hug að gera ásamt fréttum af molum..... síðan er www.molar.bloggar.is

 

Takk fyrir okkur


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 18:53:49 / bakkus

Everybody loves Óli Týr

Þá erum við búnir að fá staðfestar fréttir af því að þættinir á skjá einum um Ray Ramano eru bygðir upp eftir okkar ástkæra Óla Týr, en eins og flestir vita þá búa foreldrar hans ásamt bróðir hans, honum Obba beint á móti Óla. Talsmaður okkar hjá HBO segir að Obbi hafi hringt í hann og sagt honum frá þessu skemmtilega fjölskyldulífi og ákvað þá talsmaður okkar hjá HBO að gera þessa þætti. Óli fékk greiðslur frá HBO fyrir hugmyndina af þáttunum en eftir 5 seríur hættu þeir að borga honum því persónur þáttarinns hafa breyst svo og er ekki hægt að sjá Óla Tý né Obba í þeim lengur... Eins og flestir vita nú vantar flísar á smá part á húsið hans Óla.. Það er aðeins vegna þess að HBO hætti greiðslu til Óla... Einnig höfum við heyrt að Ólafur væri búinn að láta hanna fyrir sig sundlaug sem átti að vera í garðinum en er hann því miður hættur við það vegna HBO... Við hjá sjoroghaf viljum því biðja HBO um að klára allavega að flísaleggja fyrir kallinn því hann er nú bara kennari...

hérna er húsið hans Óla og ég vil biðja HBO aftur um að gera okkur það að hjálpa Óla að flísaleggja restina af húsinu...

Og hérna er hús foreldra Óla og einnig býr hann Ósvaldur Freyr (Obbi) þarna...

Svona aðeins til að hressa uppá þetta, svo maður sé ekki niðurbrotinn við að heyra að HBO sé hætt að borga Óla, skelli ég hérna mynd af einu fylleríi sem Óli Týr bauð okkur á sjoroghaf á þegar hann var ríkur...

 En elsku Óli okkar ef þig vantar hjálp við að flísaleggja vertu þá ekki feiminn að hringja í okkur..... En að lokum 2x2=4..


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 22:00:24 / bakkus

Aðdáendasíða Sigurjóns Ingvarssonar

Þá er loksins búið að gera aðdáendasíðu Sigurjóns Ingvarssonar. Sjá hafsins hetjur um síðuna og munu gera það eins heiðarlega og með sem minnstu bulli og hægt er.

endilega kíkið

www.blog.central.is/sigurjoningvars

Dapi rúlar


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 21:28:01 / bakkus

Uppsprengt verð á hurðum í Vestmannaeyjum

Lítið framboð hefur verið á hurðum í eyjum undafarna mánuði og hafa söluaðilar verið að selja þær á uppsprengdu verði.. Í samtali við Ardísi Báru kom fram að ein skitin spónarplata með einföldu gleri kostar allt að 60.000kr en ef þú vilt hafa tvöfallt gler er verðið komið í 75.000kr. þar er ekki talið með hurðakarmur né húnn.

Menn hafa brugðið á það ráð að selja allar hurðir í húsum sínum til að fá smá vasapening, og hefur Diddi pabbi selt allar hurðir í húsinu sínu og fjárfest í bakkavör.

Þessi hurð kostaði fyrir hækkun 12.000kr en kostar í dag 80.000kr. og var það einmitt svona hurð sem hann Elvar gerði auka holu á í ónefndu partýi um jólin...


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 16:13:58 / bakkus

Margt að þakka XXX

Eins og hvert mannsbarn veit þá er stórsveitin XXX Rottweiler að koma til eyja næstu daga og halda tónleika á prófastinum þann 10. Febrúar næstkomandi.

Við í Bakkussi höfum sko margt þessum drengjum að þakka og viljum koma því þakklæti á framfarir hér með.. T.d. hefði Gústi aldrei byrjað að spila á gítar hefði hann ekki heyrt í hundunum því þar vaknaði tónlistaráhuginn hjá honum, svo byrjaði Dansi Baldur líka að dansa við lagið "Þér er ekki boðið" og hafa margar stelpur orðið dansfélags lausar á böllum hefði þessi klikkaða sveit ekki komið til starfa.. Auk þess sagði lítill fugl okkur að hann Óli Týr hefði aldrei byrjað að kenna hefði hann ekki heyrt "Sönn Íslensk sakamál".. Þannig að við hvetjum alla landsmenn að mæta á prófastinn þann 10.

Þessi mynd tók hann Gölli einmitt á síðustu tónleikum hundanna hérna í eyjum og eins og sjá má var glatt á hjalla...


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 19:31:39 / bakkus

Þroskanámskeið Dauðans

Góð mæting var á þroskanámskeiðið sem var haldið á milli jóla og nýárs, en var það í umsjá úlpugengisins. Voru ýmsir skemmtilegir fyrilestrar en þar má helst nefna hvernig á ekki að skemma partý með því að taka rafmagnið af og skrúfa fyrir allt vatn, hvernig á að comenta undir eiginn nafni, hvernig á að haga sér í kringum úlpugengið og síðast en ekki síst hvernig á að hætta að haga sér eins og hálvitar.

Ekki virðist námskeiðið hafa heppnast nógu vel þrátt fyrir góðu mætingunna og höfðu þær á orði að námsmenninir væru of óþroskaðir til að þroskast sérstaklega þegar búið var að sprauta úr slökkvutækinu inná klósetti. En því miður útskrifaðist enginn af námskeiðinnu nema Raggi Sig. Enda á hann framtíðina fyrir sig. Þökkum við fyrir tilrauninna hjá þeim en myndinn hér fyrir ofan var tekinn þegar námskeiðið var bara hálfnað og mikill hamingja var enn í hópnum. Einnig er gott að koma því á framfarir að þroskaðasta manneskjan í genginu gat ekki séð sér fært á að mæta vegna hún var að taka Óskar Þór í einkanámskeið.

 

Dapi Rúlar á nýju ári

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 19:39:21 / bakkus

Geri það gott um jólin

Afmælis barnið hann jesú gerði það gott um hátíðina hann átti best skreytta húsið fyrsta árið í röð. Gamli molinn strunsaði niðrí geisla til hans Tóta besta vin hans Kidda gamla og sagði við hann "viltu vatn eða vína á jólunum" Tóti hugsaði sig ekki um og skreytti húsið hans Jesú og fékk hann Njörð með sér í lið. Húsið var svo vel skreytt að þegar hann Ómar á fréttum fór og skoðaði húsið hoppaði hann í fjórfallt heljarstökk afturábak og öskraði uppí vinstri nösina á Kæju GEMMÉR IRISH.
Þessa mynd sendi Ómar okkur þegar hann var búinn með Irishinn og svo sveittur á spönginni að syndaflóðið í denn var bara tepoki meðað við þetta flóð.

Dapi rúlar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 20:32:35 / bakkus

Til hamingju með afmælið

Við viljum óska gestum og gangandi gleðilegra jóla. Einnig ætlum við að koma fram afmælis kveðju til hans Jesú sem á víst afmæli í dag ,við vorum búnir að fá fréttir um að hann væri staddur í vestmannaeyjum yfir hátíðina. Fréttamenn fóru á stað þar sem góðvinur okkar hann Siddi er vanur að bleyta í kvenfólki þar rákumst við á mannin.
Þessi mynd náðist af honum þar sem hann var ný kominn úr tökum á framhaldi af myndinni The passion of the christ. sem var tekin mest öll útí Ystakletti.

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 19:50:24 / bakkus

Óli Týr nýkominn heim!!!

Þannig er mál með vexti að hinn merkilegi kennari Ólafur Týr hvarf úr eyjum í eina viku ekki alls fyrir löngu og vissi hvorki fjölskylda né vinir um piltinn en upp um hann komst þegar hann kom heim aftur.. Þá hafði drengurinn fengið nóg af vondu veðri hérna heima við og skrapp til Tyrklands ásamt stór vini sínum Herjólfi Bárðar ekki náðist mynd af vinnunum þegar þeir voru úti en aftur á móti náðist mynd af Óla þar sem hann er ný kominn heim.

Eins og sést hefur sólin leikið hann grátt eða rautt eftir hvernig á það er litið en þetta gerir hann örugglega ekki aftur.. Og bið ég þá frekar um snjó heldu en að enda svona..


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 13:56:52 / bakkus

Gefa út rappdisk fyrir Jólin 2007!!!

Samkvæmt heimildu æsifréttamanna okkar hefur það komið í ljós að tveir af okkar ástsælustu röppurum ætla að gefa út disk fyrir jólin 2007, þetta eru þeir "Puff Sævi " og "Puff Diddi" en þeir eru einmitt byrjaðir að skratza og taka upp í bílskúrnum hjá Grétari Sævalds en þar er topp aðstæða til að rappa. Einnig hefur heyrst til þeirra útá haugasvæði vera að æfa rímurnar..

Þessi mynd náðist af þeim félugum þar sem þeir voru að æfa rímur með Wu Tang Clan. Nú fer bara hver að vera síðastur að panta gripinn því þó það sé ár í útgáfu eru raðir byrjaðar að myndast fyrir utan helstu plötubúðir landsins


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 18:10:07 / bakkus

Hvaðan kemur nafnið Valdís Bylgja??

Jæja þá er búið að skíra dóttur hans Elvars... Og hvað á barnið að heita? "Valdís Bylgja"

En hvaðan kemur nafnið?? Við sendum mann á vetvang og könnuðum málið og í ljós kom að hann Elvar okkar fékk einn að ráða nafninu.. Þetta er nefninlega ekki út í bláin þetta nafn.. Þannig er að við eigum einn hérna sem heitir Sævald og hann á móðu sem heitir Ásdís og ef þið setjið þetta nú saman hvað kemur út jú Valdís.. Skrítið.. En þetta nafn Bylgja, þannig er að einn af okkur var einmitt á bát í sumar sem heitir Bylgja. Þannig að hann Elvar okkar vissi sko alveg hvað hann var að gera þegar hann fann þetta nafn..

En auðvitað óskum við henni Valdísi Bylgju til hamingju með þetta fallega nafn..

Dapi rúlar


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 14:02:42 / bakkus

Ekki gekk þetta vel með tannkremið

Útlitsmeðferðin hjá Þossa gekk nú ekki alveg eins og hann ætlaði... Hann smurði sig með tannkreminu áður en hann fór að sofa en þegar hann vaknaði var það allt orðið gler hart og ekki gekk vel að opna augun því þau voru límd aftur.. Við töluðum við Þossa í morgunn og hann vildi ekkert segja um þessa meðferð eða komandi framtíð, aðspurður hvort hann ætlaði að prófa nýja tegund tannkrems vildi hann ekkert segja.

Eins og sést á þessari mynd er hann allur lurkum laminn eftir svefninn, og ekki að sjá að þetta virki. nú er bara að bíða og sjá hvort hann prufi aðra tegund.

Dapi rúlar


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 22:46:42 / bakkus

Útlitsmeðferð hjá Þossa

Nú eru jólin á næsta leyti og allir vilja nú líta vel út yfir hátíðarnar. Samkvæmt fréttamanni okkar hefur það ekki farið framhjá neinum reykjarvíkurbúa að hann Þossi okkar tekið þessu frekar alvarlega, hann er nú búinn að fara á námskeið sem kennir fólki að líta betur út. Hann er t.d farinn að þvo hár sitt uppúr kúahlandi og hendur uppúr volgri mjólk. En það sem flestum kom á óvart var að hann er farinn að bera á andlit sitt tannkrem áður en hann fer að sofa og sefur með það yfir nótt. Þetta á víst að gefa hraustlegt og gott útlit, og meigum við fara að vara okkur á honum.

Hér sést Þossi á þriðjudaginn var og ekki er betur að sjá en þetta virki nokkuð vel.

Dapi rúlar


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 14:47:13 / bakkus

Elli hákarl

Mikill miskilingur hefur verið í kringum handleggsbrot hjá Ella Palla, en margir héldu að hann hafi slasast í landi við að reyna að róa mannskapinn á einum samkomustað þar sem menn vilja oft panta áfengadrykki og rifja upp gömludansana á virkum kvöldstundum. En það rétt er að þetta var vinnuslys um borð í Vestmanney VE 54, þannig var mál með vexti að hann kom auga á hákarl syndandi við hlið skipsins og án þess að hugsa tvisvar um (sem hann er ekki frægur fyrir). Stökk drengurinn útí vopnaður stroffu og réðist á kvikindið, eftir nokkra baráttu náði Elli Palli að koma stroffunni utan um sporðinn og kallaði á hina peyjana sem slökuðu króknum niður og hífðu upp fenginn.

Eins og sést er þetta enginn smá smíði, og var hákarlinn gjörsigraður en Elli Palli var bara brotinn á hendi og með minni háttar mar.

» 8 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 21:09:20 / bakkus

Alltaf jafn kalt í borg dauðans,

Erfitt er fyrir marga eyjamennina að fóta sín fyrstu skref í borg dauðans og má þar nefna: mengun, stress, peninga eyðsla, eiturlyf og auðvitað helvítis kuldinn. Þegar maður er vanur að búa á paradísareyjunni fögru nær alla sína ævi í 20° meðal hita og roki sem stríkur vangann þegar maður siglir inn innsiglinguna með fullann bát af þorski getur verið erfitt að koma í kuldan í Reykjavík. Í gær fór í hitin -17°C og var allt í kássu þar sem enginn helvíta maður í borginni kann að keyra í hálku, umferðateppur frá Akureyri að Höfn í Hornarfirði. Ekki létu Hafsins Hetjur það buga sig og skelltu sér út í klakarigninguna sem gat ekki annað en hresst mann við í þynkunni.

Þegar þessi mynd var tekin voru Ási og Þossi saman úti í klakarigningunni, eins og glöggir lesendur sjá þolir Ási greinilega kuldann ekki jafn vel og Þossi.


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6